Leit

Netspjall

Svarbox

Other languages

  • Thailand
  • Polska
  • english

Fréttir

Æ fleiri skólar velja útikennslu | 03.12.2008

Útikennsla hefur skotið rótum í fjölmörgum grunn- og leikskólum í borginni og er nú fastur þáttur í skólastarfinu. Nemendur í langflestum leikskólum, þar sem lagt er stund á útinám, fara einu sinni í viku eða oftar í útikennslu. Þetta kemur fram í könnun Náttúruskóla Reykjavíkur á útikennslu í grunn- og leikskólum Reykjavíkurborgar.

Aldrei of varlega farið! | 03.12.2008

Starfsfólk Nauthólsvíkur vill sérstaklega minna sjósundgesti á að fara varlega. Nú um stundir er sjórinn rétt um 2°C og því nokkuð varasamt að ætla sér mikið í sundinu.

Umferðarljós gatnamóta Bústaðavegar og Grensásvegar áfram óvirk | 03.12.2008

Ljósin á gatnamótum Bústaðavegar og Grensásvegar eru óvirk í dag. Í gærmorgun hófst vinna við tengingar miðlægrar stýringar umferðarljósa og voru þau gerð óvirk. Verkið reyndist tafsamara en áætlað var og verða ljósin óvirk áfram, en vonast er til að verkinu ljúki síðdegis í dag, miðvikudag 3. desember.